Velkomin á Turkey Run
“Turkey Run”  var fyrst haldin af meðlimum “Daytona Beach Street Rods” í lok nóvember árið 1974, á Þakkargjörðarhátíðinni.  Síðan hefur Turkey Run verið árlegur viðburður á Daytona, Florida.

Á fyrstu sýningunni voru 40 bílar og var sýningin  þá staðsett á A1A (strandgötunni).  Fjölgunin var gríðarleg frá ári til árs.  Árið 1989 var sýningin í fyrsta sinn á Daytona International Speedway (kappakstursbrautinni frægu) og voru þá skráðir yfir 2000 bílar. Um 6000 bílar eru skráðir að jafnaði á hverju ári og um 2000 sölubásar með alls konar varning.

Turkey Run er ekki aðeins stærsta fornbílasýningin á Florida heldur einnig sú stærsta sinnar tegundar í suð-austur hluta Bandaríkjanna. Í dag er Turkey Run algjör mekka fornbílaáhugamanna. Enginn sem hefur áhuga á fornbílum og hefur tök á  ætti að láta þessa sýningu fara fram hjá sér.

Aðgangseyrir á sýninguna 2010 voru $15 á dag, nema sunnudag $10. Frítt er fyrir börn 11 ára og yngri.

Sérstök dagskrá er í boði fyrir utan brautina á kvöldin, t.d. spyrnukeppni í hver getur farið hægast af stað, keppt er á jafnvægisslá og fleira. Sérstök upplifun er að fara á rúntinn eftir strandgötunni en þá eru þátttakendur og gestir að sýna sig og sjá aðra. 

En Daytona býður ekki aðeins uppá fornbílasýningu og kappakstur heldur má finna þar ýmsa afþreyingu.  Sólarþyrstir geta flatmagað á ströndinni eða við sundlaugina.  Meðalhiti í nóvember  á Florida er um 25 °C.

Á Daytona er mjög stór flóamarkaður, Daytona Flea & Farmer Market, og er hann  opinn allar helgar.  Markaðurinn er staðsettur við Belvue Avenue og Tomoka Farms Road (rétt eftir að komið er inn til Daytona frá Orlando, stutt frá Speedway).

Flóamarkaður á Florida er einn heimur út af fyrir sig.   Í rauninni ætti enginn að sleppa því að fara á flóamarkað.  Á markaðinum  má finna allt milli himins og jarðar, bæði notað og nýtt;  verkfæri, leikföng, fatnað, snyrtivörur, skartgripi, töskur, eldhúsáhöld, gjafavörur, ávexti, grænmeti, bækur, silkiblóm og fleira og fleira.

Mjög gott ”mall” er beint á mótiSpeedway, Volusia Mall.  Þar eru yfir 100 búðir og lítið mál að dvelja þar klukkustundunum saman. K-Mart er rétt fyrir neðan Volusia Mall.  Stór verslun þar sem allt fæst á góðu verði. Fínt að versla jólaskraut, jólaseríur, jólagjafir og fleira. 

Wal-Mart, við Dunlatown Ave og Beville Road  er stór og góð verslun þar sem næstum allt fæst; föt, verkfæri, matvörur og margt fleira. Vinsælt er að ná sér í jóla-kalkúnabringuna þar.

Þar sem ekki er nema rúmlega klst. akstur til Orlando er kjörið að skella sér í einhvern skemmtigarðinn sem þar er að finna (sjá Flugleiðabækling). Og  þeir sem hafa áhuga á geimrannsóknum ættu að skoða NASA Kennedy Space Center.

Saturday Nite Cruise er einstakur viðburður alla laugardaga í  Old Town, Kissimmee. Bílarnir byrja að streyma inn í bæinn um kl. 13. Kl. 20:30 hefst krúsið.  Allar upplýsingar má lesa inná www.old-town.com

Eins og sjá má af ofan töldu eru óteljandi afþreygingarmöguleikar.  Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.