Gott hótel staðsett við ströndina. Öll herbergi eru með eldunaraðstöðu, ísskáp, kaffivél, örbylgjuofni, brauðrist. Sjónvarp, hárblásari og straujárn.
Extended Stay Orlando
Gott hótel staðsett við Universal Blvd. næsta gata fyrir neðan hina vinsælu International Drive þar sem allt iðar af lífi. Öll herbergi eru með eldunaraðstöðu, ísskáp, kaffivél, örbylgjuofni, brauðrist. Sjónvarp, hárblásari og straujárn.
Turkey Run 2011 - ferðasaga...
Í nóvember 2011 buðum við uppá 8 og 11 daga ferðir til Turkey Run á Daytona Beach í Florida. Brottför í báðar ferðirnar voru þriðjudagurinn 22. nóvember. 8 daga ferðinni lauk 30. nóvember (lent að morgni 1. des. í Keflavík). Dvalið var á Tropical Winds Oceanfront á Daytona Beach. 11 daga ferðinni lauk 3. desember (lent að morgni 4. des. í Keflavík). Gist var á Daytona í 6 nætur en siðan var haldið til Orlando og gist á Extended Stay í 5 nætur. Þetta var fyrsta árið sem boðið var upp á að enda ferðina í Orlando sem var spennandi kostur á annars bráðskemmtilegri ferð.