TURKEY RUN 2011

Turkey Run er haldin árlega á Daytona, Florida. Hún er ekki bara stærsta fornbílasýning á Florida heldur einnig sú stærsta sinnar tegundar í suð-austur hluta Bandaríkjanna. Frá 1998 höfum við  farið skipulagðar ferðir á Turkey Run. 
Við höfum skilað meira en 600 ánægðum ferðamönnum heim og stór hluti þeirra 
hafa farið aftur og aftur . 
Turkey Run er Mekka fornbílaáhugamanna. Um 6000 bílar eru til sýnis og um 2000 sölubásar bjóða sýningargestum alls konar varning.
 
BÍLAUPPBOÐ Í KISSIMMEE, JAN. 2012

Spennandi ferð til Flórida þar sem farið verður á Mecum bílauppboðið í Kissimmee. Ferðin stendur yfir frá 24. janúar - 1. febrúar 2012. Mecum Auction er uppboðið árlegur viðburður. Upplýsingar um uppboðið eru á www.mecum.com en nú þegar eru komnir 1750 bílar öllum aldri á skrá. Til þess að vera bjóðandi þarf að uppfylla ákveðin skilyrði, sjá á heimasíðu Mecum eða hjá fararstjóra. Verð á mann í tvíbýli í 8 nætur er kr. 121.900 og nánari upplýsingar fást á icelandair.is. 
SÉRFERÐIR TIL FLÓRIDA

Allar upplýsingar og bókanir á vegum OldCar eru á icelandair.is undir sérferðir. 

Fylgist með á oldcar.is á Icelandair.is þegar nýjar og spennandi ferðir fyrir bílaáhugamenn verða kynntar á árinu 2012.


Pantið ferð og gistingu hér þegar nær dregur.